Heimsborgarar

Í tilefni bóndadagsins ákvað ég að viðra húsbandið mitt í gærkvöldi. Þórdís hefur lengi verið að biðja um að fá að gista hjá ömmu og afa og það varð úr að stelpurnar fóru þangað í gær. Ég fékk gjafabréf á Lækjarbrekku í afmælisgjöf og því var tilvalið að fara þangað og njóta alls þess góða sem þar er boðið uppá. Mér hefur alltaf þótt villibráð góð, en er víst ein um það á mínu heimili, svo ég hef ekkert verið að elda svoleiðis síðustu árin. Á matseðlinum var hreindýrasteik, eitthvað sem mig hefur dreymt lengi um að fá mér. Meira að segja Steini ákvað líka að prófa hreindýr. Þjónninn var alveg frábær, eins og alltaf þegar maður heimsækir Lækjarbrekku, og hann gat blikkað kokkinn til að setja líka tvo humarhala á diskinn hans Steina.

Við fengum steikurnar okkar og byrjuðum að borða. Þetta var alveg ljúffengt og kjötið bráðnaði uppí manni. Þjónninn kom og spurði hvernig smakkaðist og ég sagði náttla bara að þetta væri voða gott, eins og þetta var. En mér fannst samt eitthvað vera skrýtið... ég smakkaði næsta bita, og næsta bita, og alltaf fannst mér eins og þetta væri eitthvað öðruvísi en síðast þegar ég smakkaði hreindýr. Mér fannst kjötið óvenju dökkrautt á litinn, minnti frekar á hrefnukjöt en hreindýr. En ég bjóst við því að í rökkrinu þarna inni þá liti þetta bara þannig út. Ég sagði Steina að síðast þegar ég smakkaði hreindýr, þá hefði það verið miklu betra, ég hefði bókstaflega getað slefað yfir því þá. Svo fór ég að spá, það gæti bara verið að ef maður hætti að borða villibráð, þá mundi manni hætta að þykja hún eins góð. Steini lét mig smakk af sínum mat, því honum fannst skrýtið að finna lýsisbragð. Hélt kannski að það kæmi bragð af humrinum, en þetta var sama bragðið og af mínum mat, þ.e. maður fann lýsisbragð af einum og einum bita. Við kláruðum svo bara að borða og fengum okkur góðan kaffibolla á eftir. Réttum þjóninum svo gjafabréfið og fengum það til baka með því sem er eftir af inneigninni, ásamt kvittuninni. Svo röltum við út og ég fór að ganga frá kvittuninni í veskið mitt, þegar ég leit á hvað þar stóð: 2 x hrefnusteik LoL Við biluðumst úr hlátri yfir þessu. Við vorum þá ekki eins vitlaus og við héldum, hahaha, en ég passa mig á því næst að spyrja þjóninn ef mér finnst eitthvað ekki vera eins og ég held það eigi að vera Tounge Svona er það þegar sveitalúðarnir fara á kreik og halda að þeir séu einhverjir heimsborgarar, haha. En við ætlum að fara fljótlega og klára inneignina. Ætlum þá að taka stelpurnar með okkur. Ég hugsa að þegar ég hringi og panti borð, þá láti ég það verða á nafni Hrefnu Grin 

Við fórum svo í bíó á eftir og sáum myndina Slumdog millioner. Alveg frábær mynd sem ég get vel mælt með. Kvöldið var einstaklega skemmtilegt, og gaman að smakka óvart hrefnukjöt W00t 

IMG 2474

Það lítur út fyrir að styttist í að kettir heimilisins semji frið Smile Set þessa mynd inn fyrir hana Röggu Wink 

Ég kíkti aðeins á Austurvöll í dag en var frekar seint á ferðinni. Heilmikil samstaða og stemming þar. Mig langar á mótmælafundinn á morgun en við verðum í afmæli í næsta húsi á sama tíma. Kemst vonandi á þann næsta. Eigið góðan sunnudaginn elskurnar mínar Heart

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Haahah fyndið með kjötið    Æ, hvað er gott að sjá að kisurnar eru farnar að nálgast hvor aðra þetta er greinilega allt að koma

Bestu kveðjur og ljós

Ragnhildur Jónsdóttir, 25.1.2009 kl. 00:21

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Elskan mín þið eruð einmitt heimsborgararSveitalúðar hefðu orðið vitlausir yfir að fá hrefnu í staðinn fyrir hreindýr og verið með leiðindi og læti, á meðan heimsborgarinn tekur öllu með jafnaðargeði og hlær svo að öllu saman

Jónína Dúadóttir, 25.1.2009 kl. 09:39

3 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ragnhildur mín; já þetta var bara skemmtilegt og fyndið. Englakisa gefst ekkert upp á að reyna að fá þann gamla til að leika við sig  hann á eftir að gefa sig á endanum.

Jónína mín; þú segir nokkuð. Ég var ekki búin að átta mig á þessari hlið málsins. Við erum þá bara flottir heimsborgarar eftir allt saman 

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 25.1.2009 kl. 10:37

4 Smámynd: Tiger

  Alltaf sama atið í kringum þig addna ... annars bara stutt innlit og kveðja ljúfust.

Kisskiss og hafðu frábæra helgi.

Tiger, 31.1.2009 kl. 15:02

5 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Tiger minn; en óvænt ánægja að sjá þig hér snúðurinn  Hafðu góða helgi sömuleiðis

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 31.1.2009 kl. 20:06

6 Smámynd: Tiger

  Haha .. guess who!

Tiger, 2.2.2009 kl. 15:16

7 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

??? Þú addna grallaraspói! Varstu kannski að elda hrefnukjöt???

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 2.2.2009 kl. 16:12

8 identicon

 Hahaha .. neinei .. ég bara var að forvitnast um hvort það væri komin ný færsla, en sumir eru latari en aðrir sko .. *flaut* ...

Tiger (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 17:35

9 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Nei nei, það er ekki rétt. Sumir eru bara ofvirkari en aðrir, híhí..*ulla*

En jamm ég skal alveg viðurkenna að ég er haldin smá bloggleti...en það rætist úr því  og kannski áður en kvöldið er liðið...

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 2.2.2009 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigrún Þorbjörnsdóttir

Höfundur

Sigrún Þorbjörnsdóttir
Sigrún Þorbjörnsdóttir

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG 7150
  • IMG 7145
  • IMG 8394
  • IMG 7856
  • IMG 7847

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband