Fjörheimar

Þar sem eru börn, þar er líf og fjör. Og heimilið mitt er yfirleitt fullt af börnum. Og mér finnst það fínt. Það segir mér að börnin mín eiga vini. Einhvern veginn er það svo, að hingað sækja krakkarnir mikið. Stelpurnar leika að sjálfsögðu líka við vini sína heima hjá þeim en eru oftar hér með vinum sínum. Ég fæ þá líka að kynnast vel þeirra vinum sem eiga eftir að verða vinir þeirra í framtíðinni.

IMG 7145

Hér er Þórdís og vinkona hennar. Þær hjálpuðu til við bakstur

IMG 7150

Það fer ekkert krem til spillis hér Tounge

IMG 7847

Þórdís er myndarleg að brjóta saman þvott

IMG 7856

Svo þarf að fara með allt í skúffurnar... í einni ferð LoL

IMG 8394

Eydís fjörkálfur hjálpar til við að setja í þvottavélina Smile 

IMG 8435

Svo eru kósý stundir þar sem er teiknað. Þær gera mikið af því að teikna.

IMG 8462

Svo þarf stundum að taka smá auka fimleikaæfingar heima. Hér er Eydís að taka tilhlaup.

IMG 8463

Og svo framheljarstökk W00t 

IMG 8478

Og Þórdís líka Smile 

IMG 8491

Svo var mamma klöppuð upp líka W00t

IMG 8492

Og það var mjög fyndið og skemmtilegt að horfa á mömmu stökkva LoL 

IMG 8495

Hér kemur pabbi svífandi líka Tounge 

IMG 8506

Svo þarf að æfa líkamsstöðuna líka

IMG 8508

Ekki slæmt að hafa svona einka-fimleikaþjálfara heima Wink

Já það er ýmislegt brallað hér og alltaf fjör Sideways 

Framkvæmdir mjakast áfram í rólegheitunum. Það hafa komið nokkur stopp í þær hjá okkur. Fengum bæði flensu um daginn og svo nóg annað að gera. En nú er að komast meira skrið á þetta. Þórdís á afmæli 8. nóvember og það var alltaf ætlunin að klára herbergið fyrir afmælið hennar. Steini og Garri hafa séð mest um smíðarnar og stóru verkin. Ég hef bara verið í niðurrifi og tilfæringum en svo styttist í að ég geti farið að mála og fínisera Smile Þangað til þá ætla ég að hafa það gott í draslinu hérna og svo kemur í ljós hvort næst að klára á tilsettum tíma.

Bestu kveðjur og knús í helgina ykkar Heart


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Knús í þitt fjöruga hús mín kæra

Jónína Dúadóttir, 29.10.2009 kl. 23:11

2 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Knús á þig Jónína mín. Fjörkálfarnir sofa núna og ég prjóna.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 29.10.2009 kl. 23:54

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessar flottu myndir Sigrún mín.  Og skemmtilega frásögn.  Það er greinilega margt að gerast á góðu heimili. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.11.2009 kl. 18:17

4 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Takk Ásthildur mín. Það er alltaf nóg að bralla, ekki síst hjá smáfólkinu eins og þú þekkir  Knús á þig.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 1.11.2009 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigrún Þorbjörnsdóttir

Höfundur

Sigrún Þorbjörnsdóttir
Sigrún Þorbjörnsdóttir

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG 7150
  • IMG 7145
  • IMG 8394
  • IMG 7856
  • IMG 7847

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband