Vinur kvaddur

Yndislegur ljúflingur, gamall vinur minn og félagi frá Ísafirði, Júlíus, er látinn. Ég kynntist Júlla fyrst þegar ég heimsótti Ísafjörð í gaggó. Síðan fór ég í Menntaskólann á Ísafirði og urðum við þá vinir og brölluðum ýmislegt saman. Fyrsta stóra ástin í lífi mínu er bróðir Júlla og bjó ég til skamms tíma hjá fjölskyldunni yndislegu í Kúlunni. Ég hef ekki hitt Júlla nýlega, en alltaf þegar ég hitti hann var eins og ég hafi hitt hann í gær. Hann var alltaf eins, sami ljúfi drengurinn með grallarabrosið. 

Þegar ég heyrði sorgarfréttirnar ákvað ég strax að fara vestur. Við Aurora ákváðum að keyra saman og svo bættist Nonni með í för. Það var sárt að koma til Ísafjarðar af þessu tilefni, en jafnframt ljúft að koma þangað, því það eru nokkur ár síðan ég heimsótti Ísafjörð síðast.

Veðrið var ekki alveg uppá það besta þegar við lögðum af stað og sumir reyndu jafnvel að telja okkur ofan af því að fara, en við vorum ákveðin í að komast.

IMG 5096

Á vegaskilti á Kjalarnesi stóð "ÓVEÐUR" og vindur 50 M. Þetta skilti hefur aðeins tekið dansspor í vindinum.

IMG 5107

En þá er bara að halda fast um stýrið

IMG 5111

Hér er nýja heiðin, Arnkötludalur.

IMG 5114

En við sáum ekki mikið af nýju heiðinni. Þetta er útsýnið út um framrúðuna.

IMG 5131

Komin á Hólmavík. Aurora með fast tak á mér haha, lafmóð eftir heiðina.

IMG 5133

Ég hringdi í pabba til að tékka á færðinni yfir Steingrímsfjarðarheiði

IMG 7964

Nonni og Aurora, skemmtilegir ferðafélagar Smile

IMG 7933

Tilkynningaskyldan Grin

IMG 7952

Aftursætisbílstjórinn Grin

IMG 7971

Hér sést útsýnið á Steingrímsfjarðarheiðinni Cool 

IMG 8015

Nýja brúin í Mjóafirði. Veðrið var miklu skaplegra í Djúpinu en samt ennþá mjög hvasst.

IMG 8035

Hér hélt ég að nýju bremsurnar væru að bila. Það ískraði í öllu en svo virtist það hafa verið grjót. Við vorum eiginlega með Júlla með í bílnum, því við tókum með okkur listaverk eftir hann sem þurftu að komast vestur. Hér sést "Hulk" uppstilltur fyrir myndatöku. Ekkert smá flott hjá Júlla.

IMG 5155

Hér erum við komin í Álftafjörð og sjórinn var kominn uppá rúðu í Básavindinum

IMG 8066

Við fréttum svo af því að við hefðum verið í brjáluðu veðri, með heilu gámana og þökin bókstaflega í "rassgatinu" á leiðinni

IMG 8070

Mætt í Kúlu

IMG 8073

Sem betur fer eru yndislegar gleðiskottur í Kúlunni sem eiga eftir að hjálpa ömmu og afa í sorginni

IMG 8111

Það var notalegt að koma saman hjá Önnu Rögnu og baka

IMG 8127

Flottar aðstoðarkonur, skáru niður ávexti af miklum móð Smile 

IMG 8176

Bakað til heiðurs Júlla

IMG 8202

Aurora og Sigurlaug skoða myndir af Júlla eftir jarðarförina. Minning hans mun lifa áfram í hjörtum okkar Heart

IMG 8205

Það sprakk á bílnum þegar ég skutlaði Sigurlaugu heim. Þá var ekkert að gera nema fara úr sparikápunni og í hvítu úlpuna og skipta um dekk W00t 

IMG 8221

Og svo herða LoL 

IMG 8262

Fallega kærleikskúlan

IMG 8260

Litla skottan Ásthildur hjá Báru, mömmu sinni InLove 

IMG 8264

Kveðjustund í Kúlu hjá elskulegu Ásthildi minni

IMG 8268

Yndislega Ásthildur sem tók mér eins og dóttur á sínum tíma. Kona sem hefur haft ótrúleg áhrif á mig fyrir allt lífið Heart

IMG 5187

Og svo að kveðja Önnu Rögnu. Kærar þakkir fyrir mig Heart 

IMG 8272

Við fengum fallegt veður á heimleiðinni

IMG 8278

Fjallafegurð

scan0005

Gömul mynd úr Kúlunni, Júlli og Ingi Þór. Þarna vorum við Júlli í tilraunaeldhúsi og komumst meðal annars að því að það borgar sig ekki að sjóða egg í örbylgjuofni... WhistlingGrin

Hvíl í friði kæri Júlli. Megi englar guðs vaka yfir sonum þínum og fjölskyldu. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 14.10.2009 kl. 05:25

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Elsku Sigrún mín ég var svo glöð yfir að þú skyldir koma.  Og ég sit hér með tárin yfir fallegu færslunni þinni.  Takk innilega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.10.2009 kl. 15:02

3 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Elsku Ásthildur mín, það var líka ómetanlegt fyrir mig að koma. Þið eruð í huga mínum alla daga. Kærleikur og Ljós til þín.

Jónína mín; Knúús

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 14.10.2009 kl. 23:48

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk ljósið mitt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.10.2009 kl. 08:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigrún Þorbjörnsdóttir

Höfundur

Sigrún Þorbjörnsdóttir
Sigrún Þorbjörnsdóttir

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG 7150
  • IMG 7145
  • IMG 8394
  • IMG 7856
  • IMG 7847

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband