13.5.2009 | 20:13
Beðið eftir sumrinu
Það mætti eiginlega halda að það væri haust hérna frekar en vor.. Það hefur viðrað vel í maí síðustu árin, allavega hérna, en nú er bara sem haustvindar þjóti endalaust. Það er ekkert kalt, en endalaust rok og meira rok og svo rigning af og til. Ég sá á færslu sem ég gerði 19. maí í fyrra að ég var búin með vorverkin í garðinum og Steini búinn að slá grasið. Ég nenni ekki einu sinni út í garð í þessu veðri sem er núna, held ég mundi bara fjúka Steini er að vísu búinn að mosatæta og bera á, lengra komast ekki vorverkin fyrr en veðrið skánar.
En þá bara kósum við okkur inni. Alltaf hægt að hafa kósíkvöld
Og fá sér ís
Og jafnvel taka smá dans
Það er líka gaman að klæða sig upp í alls konar búninga
Og pósa svo aðeins fyrir myndavélina
Ég held bara áfram að prjóna. Er vön að verða latari við það á sumrin en hætti við að detta úr prjónagírnum..í bili. Hér er Eydís í nýja vestinu sínu.
Stelpurnar ánægðar með nýju vestin sín Er svo komin með allavega eitt í viðbót í pöntun.
Steini athugar rör sem brotnaði þegar stéttin var brotin niður. Við erum byrjuð að huga að hellulagningu á bílastæðið og gangstétt. Það er á fjárlögum þessa árs. Bíðum eftir að pípari láti sjá sig til að leggja hitann í planið. Það verður munur að þurfa ekki að ryksuga sandhrúguna í forstofunni þrisvar á dag
Dorrit Engill fylgist með
Simbakrús
Kisurnar horfa út um gluggann og bíða eftir vorinu. Það er komin svo mikil selta á rúðurnar eftir allan þennan vind, að bráðum hætti ég að sjá út. En ég vona bara að sumarið sé rétt handan við hornið Knús á ykkur kæru vinir
Um bloggið
Sigrún Þorbjörnsdóttir
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þær myndu nú aldeilis vera eins og heima hjá sér í kúlunni prinsessurnar þínar, því þetta er mjög líkt því sem börnin gera þar. FLottar og glaðlegar eru þær á þessum myndum. En hvað er það sem Simbi er að fyolgjast með? er það fluga eða fuglarnir úti. Hann virkar mjög áhugasamur svo ekki sé meira sagt þarna á neðstu myndinni
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.5.2009 kl. 09:22
Það er komið logn!!! hahah Nú getur maður farið að stússa í garðinum, loksins!!
En þeim leiðist greinilega ekki litlu prinsessunum á bænum Það er algjörlega nauðsynlegt á hverju heimili að eiga fatakassa með ævintýrafötum og skrítnu dóti. Bara skemmtilegt
Knús til ykkar Grindjánar
Ragnhildur Jónsdóttir, 15.5.2009 kl. 11:28
Ásthildur mín; það er líka oft eins og að vera heima, að sjá myndirnar úr Kúlunni. Börnin að brasa svipað og svo eru Hanna Sól og þórdís svo líkar og Eydís og Ásthildur svo líkar. Ég sé alveg karakterana mína í þínum stelpum, prinsessuballerínubleikar og fjörugar eldri stelpur, og grallaraspóar en samt prinsessur líka yngri stelpur
Haha, Simbi var að fylgjast með ROKINU sem hefur verið hér síðustu viku. Plastið á trampólíninu var byrjað að rifna og flygsaðist í vindinum, hann hefur sennilega verið að bíða eftir að það flygi alveg af
Ragnhildur mín; Loksins kom lognið. Þetta hefur verið ótrúlegur vindur undanfarið. Það verður gaman að komast loksins af stað í garðinum Ég veit fátt betra en dútla mér þar Ævintýra kistillinn er alltaf vinsæll. Það er alltaf gaman að klæða sig upp og fara inn í hin ýmsu ævintýri Knús í Fjörðinn
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 15.5.2009 kl. 14:23
Knús á þig í rokinu skvísa
Jónína Dúadóttir, 16.5.2009 kl. 06:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.