14.9.2009 | 00:59
Eitt og annað
Síðasti mánuður hefur verið tími mikilla breytinga og spennandi tíma hjá litlu fjölskyldunni. Þórdís, stóra stelpan mín er byrjuð í skóla. Hún er náttúrulega orðin mjög fullorðin eftir að hún byrjaði í skólanum og er mjög ánægð og sátt. Eydís var pínu abbó fyrst og vildi ekki fara á leikskólann, en ég held að hún sé alveg komin yfir það. Allavega kvartar hún stundum yfir því að ég sæki hana of snemma.
Hér sýnir hún Guðbjörgu vinkonu skólatöskuna sína, voða spennt að byrja í skóla
Fyrsti skóladagurinn hennar Þórdísar. Hún er ánægð með kennarann og bekkinn sinn
Og stórar skólastelpur hafa herbergið sitt fínt. Það hefur yfirleitt verið ég sem hef tekið til í herbergjum stelpnanna, því þegar allt er komið á hvolf er erfitt að sortera allt. En fyrir mánuði tók ég allt í gegn hjá Þórdísi og hún hefur haldið því fínu síðan Ég er voða montin af henni og líka fegin, get bara labbað inn og þrifið, ekkert dót um allt. Hún býr um rúmið sjálf og brýtur saman fötin sín
Eydís passar líka sitt herbergi. Hefur reyndar alltaf verið dugleg að taka saman dótið sitt sjálf En eins og sést, þá er ekki mikið pláss til að leika...
...samt er hún svo ánægð í litla horninu sínu. En það hafa líka orðið árekstrar milli systranna. Þórdís er mjög pjöttuð með herbergið sitt og það hefur komið fyrir, að þegar hún kemur heim, er Eydís í hennar herbergi að leika með vinkonu af því það er svo lítið pláss til að leika í Eydísar herbergi.
Við höfum lengi spáð í að gera smá breytingar og létum vaða núna svo þær geti báðar átt stórt herbergi.
Hér er lítið baðherbergi sem verður rifið. Stelpurnar eru mjög spenntar og vilja taka þátt. "Mamma, nú voruð þið pabbi heppin að eiga svona stelpur, því við getum hjálpað til við þetta"
Gaman gaman, og Eydís er algjör forkur þegar hún tekur til hendinni
Hér er búið að rífa baðherbergið burt og einn millivegg úr litlu herbergi. Herbergið verður stækkað fram á gang og bætt við baðherberginu. Og ég þarf ekkert að hafa fyrir því að reka á eftir Steina, Þórdís sér alveg um það Í morgun þegar hann var ný vaknaður, sagði Þórdís við hann "pabbi, þegar þú ert alveg vaknaður...svona rétt bráðum, ætlarðu þá ekki að halda áfram að gera herbergi handa mér?"
Það er komið haust, en það eru enn góðir dagar til að leika úti á hlaupahjólunum.
Eydís brunar áfram á rafmagns hlaupahjólinu sínu. Mömmu hennar finnst hún samt stundum orðin full glannaleg á reiðhjólinu. Hún er farin að PRJÓNA á hjólinu Hvaðan skildi hún hafa það..??
Kannski frá þessum skemmtilega frænda hérna, sem Eydísi fannst reyndar ekki fara nógu hratt á hlaupahjólinu sínu
En það var ofsa gaman að hafa Guðna í heimsókn. Hann fór með okkur stelpunum í bíó líka
Á meðan var þvottadagur katta
Simbi er alveg "kattliðugur" þrátt fyrir að hafa bara þrjá fætur.
Kisuknús Dorrit Engill og Neisti vinur hennar eru sko sannir vinir og leika sér saman endalaust.
Hér er Neisti í heimsókn, virðulegur herramaður. Hann er farinn að koma snemma á morgnana og "spyrja" eftir Dorrit
Og meira af dýrum. Þessir hestar eru hér fyrir neðan lóðina. Svo kósý að hafa þá. Fyrir nokkru síðan jókst til muna "brauðát" fjölskyldunnar, þar til ég komst að því hvað það er skemmtilegt að gefa þeim að borða
En nú fá þeir bara brauð sem ég "skammta" í þá, haha!
Svo var kósýkvöld hjá okkur í gærkvöldi. Notalegt að kúra saman í stelpuknúsi
En ég segi góða nótt. Megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur.
Um bloggið
Sigrún Þorbjörnsdóttir
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Yndisleg færsla og skemmtilegar myndir, sú síðasta er æðislega kósý. Gaman fyrir Eydísi að fá stærra herbergi, og auðvitað rekur hún á eftir pabba sínum.
Og gott áttu að eiga svona snyrtilega stóra stelpu, vonandi verður Hanna Sól líka svoleiðis þegar hún verður 6 ára, en ég á einn 12 ára, sem hendir fötunum sínum út um allt. Það er vonlaust að reyna að tala um það við hann, lofar öllu fögru og gleymir svo. Takk fyrir þessa fallegu hugvekju elsku Sigrún mín. 
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.9.2009 kl. 10:37
Takk Ásthildur mín
Vonandi verður Hanna Sól líka dugleg að halda fínu í kringum sig. Þetta hefur alveg tekið sinn tíma, hún var ófáanleg til að taka til nema ég væri með henni í því, þá var það gaman. En nú passar hún alveg sjálf uppá allt
Ég kannast við hina týpuna líka.. hann er orðinn tvítugur í dag, og enn detta larfarnir bara einhvers staðar...
en við erum víst ekki öll eins. Þeir hafa nú báðir sitthvað annað gott að bera 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 14.9.2009 kl. 23:16
Já þið pabbi eruð heppin að eiga svona stelpur

Jónína Dúadóttir, 15.9.2009 kl. 08:07
Já við erum sko heppin

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 16.9.2009 kl. 08:16
Yndislegt að kíkja á ykkur (þó það sé bara í gegnum bloggið ennþá ;-) Þórdís dugleg að halda herberginu sínu svona fínu. Mikið verður spennandi að fá stærra herbergi fyrir Eydísi, já og þið svo sannarlega heppin að eiga svona duglegar stelpur að hjálpa til
þær eru náttúrulega bara dásamlegar 
Kisukrúttin þín eru auðvitað algjöra dúllur. Gaman að eiga svona kisufélaga í næsta húsi. Ég man eftir einni kisu sem ég átti þegar ég var krakki, það kom alltaf kisustrákur úr hverfinu að spyrja eftir henni. Stóð fyrir framan útidyrnar og mjálmaði þar til ég kom út að tala við hann og hleypa minni kisu til hans. Skemmtilegt. Simbi, hann er nú bara spes sómakraftakarl
Bestu kveðjur til ykkar yndislegust
Ragnhildur Jónsdóttir, 17.9.2009 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.