24.6.2009 | 10:57
Sumargleði
Það er alltaf í nógu að snúast og gaman að hafa sumarið. Við höfum bara farið einu sinni uppí lóðina okkar í sumar. Einhvern veginn alltaf eitthvað annað um að vera. En okkur langaði líka að geta farið eitthvað annað en uppí lóð, svo við keyptum okkur gamlan tjaldvagn. Það verður gaman að skreppa eitthvað með stelpunum og hafa skemmtilega útilegustemmingu
Í garðinum hjá mömmu og pabba vex rabbarbari. Við vorum hjá þeim á sunnudaginn og tókum rabbarbarann upp í leiðinni.
Stelpurnar voru duglegar að hjálpa til. Þær tóku öll blöðin og settu í poka.
Svo er líka hægt að gera úr þeim hatta
Voða gaman
Þær stóðu sig vel. Ég var bara að horfa á meðan þau tóku upp rabbarbarann. Þær voru mjög hróðugar með verkið og ég fékk sko að heyra það að "Við gerðum sultu, og mamma gerði ekki neitt" með áherslu á EKKI NEITT!!!
Ég var því ekki að gera neitt í gær þegar ég sauð sultuna, hakkaði og setti í krukkur
En það standa líka yfir framkvæmdir hér heima. Við rifum burtu gamla steypta bílaplanið í haust. Til stóð að helluleggja þá, en þar sem veggirnir sem við steyptum voru dýrari en til stóð var hellulögn frestað. Ég vil eiga fyrir því sem ég geri, og nú erum við búin að safna okkur fyrir hellunum, sem eiga að koma í dag Það er búið að leggja hitalögn í planið og setja sand yfir, og áður en allur sandurinn verður kominn hingað inn, vonast ég til að það náist að klára verkið
Það er orðið frekar þreytandi að standa með ryksuguna allan daginn því það berst ótrúlegt magn hingað inn! En þegar stéttin hér fyrir utan var brotin niður, brotnaði drenrör við húsið. Steini var að laga það í gær og þar sem ég er með svo mjóa handleggi var ég sett í píparadjobbið, að hreinsa grjót sem hafði farið inn í rörið.
Ekki mjög þægileg vinnuaðstaða hehe
Hér er ég að verða komin upp að öxlum við að moka grjótinu upp úr rörinu sem liggur í beygju frá húsinu
Ég komst í sjálfheldu þar sem ég lá á hvolfi, föst inní rörinu og gat ekki komið mér upp. Steina datt auðvitað ekkert í hug að hjálpa mér heldur náði bara í myndavélina en hér er ég að komast upp aftur.
Vonandi get ég sýnt ykkur myndir fljótlega af nýja planinu mínu
Um bloggið
Sigrún Þorbjörnsdóttir
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Yndislega skemmtileg neðsta myndin mín kæra
Annars hefur þetta verið virkilega skemmtilegt fyrir börnin rabbabaraprinsessurnar. Knús á þig elskuleg mín. 
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.6.2009 kl. 15:06
P.S. nú líður senn að því að stelpurnar fara suður og mamma þeirra kemur snemma í júlí, svo það er næsta víst að þær hittast þessar fjórar prinsessur. Þá tekurðu kannski mynd af þeim öllum og setur hér inn. Ég verð á þvælingi í útlöndum en fer inn á netið og skoða.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.6.2009 kl. 15:07
Jónína Dúadóttir, 24.6.2009 kl. 15:23
Já þú ert aldeilis dugleg að gera EKKI NEITT Sigrún! hahahaha góðar
Yndisleg neðsta myndin, sorry, hún er samt fyndin! haha
Líst vel á álfalegu rabarbarahattana!
knús og kveðjur á ykkur duglega fólk "sem gerir ekki neitt" nema sultur og bakstur og peysur og helluleggja og pípulagnir meira að segja! hahaha
Ragnhildur Jónsdóttir, 24.6.2009 kl. 18:37
Ásthildur mín; þetta var mjög spennandi hjá rabbarbaraprinsessunum. Haha, ekki annað hægt en að hlæja að mér á hvolfi ofan í röri
Það verður gaman að leyfa stelpunum að hittast og ég verð pottþétt með myndavél meðferðis
Verðurðu að heiman í allt sumar? Þar sem ég er orðin tjaldvagnavædd hef ég hug á því að fara í Ísafjarðarheimsókn, en mundi samt stíla inn á það að sjálf Vestfjarðadrottningin væri á staðnum
Knús á þig elskuleg 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 25.6.2009 kl. 11:23
Jónína mín;

Knús á þig ljúfan 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 25.6.2009 kl. 11:24
Ragnhildur mín; það fer mér vel að gera "ekki neitt" hahaha. Þeim fannst mjög merkilegt að mamma þeirra skildi ekkert gera
Ég er meistari í brussuskap svo hvað er annað hægt en að hlæja að manni föstum á hvolfi
Þær voru flottar með álfahattana enda gaman að nota allt mögulegt úr náttúrunni sem leikmuni
Er farin að gera "ekki neitt" núna
Knús á þig mín kæra 
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 25.6.2009 kl. 11:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.