6.2.2009 | 12:56
Afmæli
Eydís, litla prinsessan mín, er 4 ára í dag. Hún var ekkert alveg á því að vakna í morgun þegar við vorum að vekja hana. Pabbi hennar spurði hvort hún ætti ekki afmæli í dag og hún svaraði honum uppúr svefni; jú, þegar ég vakna
Hér er hún vöknuð, Eydís músíkrúsin mín, og fær fullt af kossum
Svo var afmælispakkinn opnaður. Alltaf gaman að fá pakka
Svo var farið beint að leika sér með prinsessuhöllina sem var í pakkanum. Stóra systir fær að sjálfsögðu að vera með.
Hér eru þær tilbúnar að fara í leikskólann þar sem Eydís ætlar að halda uppá afmælið sitt og bjóða uppá ís. Amma og afi ætla svo að koma í heimsókn í dag og það verður smá pönnukökuveisla Afmælisveislan sem vera átti á morgun verður að frestast þar til um næstu helgi þar sem ég er ennþá lasin. Verð vonandi búin að hrista þessa pest af mér þá. Hafið góða helgi framundan
Um bloggið
Sigrún Þorbjörnsdóttir
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með litlu dúlluna þína
Jónína Dúadóttir, 6.2.2009 kl. 15:33
Knús og innilegar afmælisóskir. Smá afmælisgjöf til Eydísar og þið njótið vonandi öll með http://www.youtube.com/watch?v=Rooyt3ptNco ég vona að tengillinn virki, annars er þetta á blogginu mínu og Facebookinu líka
Afmælisknús
Ragnhildur Jónsdóttir, 6.2.2009 kl. 16:14
Takk stelpur mínar Algjört krúttmyndband Ragga
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 6.2.2009 kl. 18:50
Til hamingju með þessa glæsilegu prinsessu, yndisleg bara - og þær báðar! Eigðu ljúfa helgina með prompi og prakti.. eða þannig!
Knús knús ...
Tiger, 6.2.2009 kl. 19:09
Takk fyrir það ljúfasti. Eigðu sömuleiðis frábæra helgi
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 6.2.2009 kl. 20:52
Wúhú ... ég átti og á enn frábæra helgi sko .. hope you´ve got the same skottið mitt!
Kreist og kram ljúfan ..
Tiger, 8.2.2009 kl. 13:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.