30.12.2008 | 13:19
Árleg leti
Þennan tíma ársins verð ég alltaf ofboðslega löt. Það bara hellist yfir mig værðin. Einu dagarnir sem ég klæði mig er þegar við förum í jólaboð, sem hafa verið nokkur, hinir dagarnir eru bara náttfatadagar. Ég dró fram stórt púsluspil, grín-teiknimynda, og allir geta verið saman að púsla. Það finnst okkur voða kósý.
En hér er líka búið að vera líf og fjör. Mamma, pabbi, Guðni bróðir og Eddi frændi voru hér á aðfangadag.
Stelpurnar búnar að stilla sér upp og tilbúnar í pakkana..
Þær réttu afa pakkana og hann las á þá. Þær fóru svo og færðu viðkomandi pakkana og aðstoðuðu líka við að opna þá Skipti engu hver átti pakkann, alltaf jafn spennandi að opna og sjá innihaldið.
Hér fær Steini sinn pakka. Það þurfti heilt leikrit til að fela þetta fyrir honum...
Ég nefnilega prjónaði lopapeysu handa honum. Og þar sem hann lá fótbrotinn hérna heima þá sat ég við hliðina á honum meðan ég prjónaði "peysu handa Guðna" í jólagjöf og hann trúði því allan tímann að Guðni ætti að fá hana
Eydís opnar pakka...
...og breytist svo í Mjallhvíti
Og Þórdís breyttist í Öskubusku. Algjörar prinsessur
Hér fær mamma jólakúlu með mynd af stelpunum inní. Hlýtur að hafa heppnast vel hjá mér því Guðni ætlaði ekki að trúa því að ég hefði búið þetta til
Og ekki má gleyma kisa, hér er hann búinn að opna sinn pakka með aðstoð frá Guðna.
Svo þarf að hvíla sig aðeins og knúsast. Hér er Eydís með Guðna sínum
Og Simbi komst á uppáhalds staðinn sinn þegar búið var að opna pakkana. Hér kúrir jólakötturinn á þessu heimili öll jólin
Við fórum á tónleika í Háskólabíói á laugardaginn, til styrktar SKB. Þetta málefni er mér mjög skylt og finnst mér þetta frábært framtak hjá Einari Bárðarsyni. Á tíu árum hafa safnast yfir 27 milljónir. Tónleikarnir voru glæsilegir og frábærir listamenn sem komu þar fram og gáfu vinnu sína. Stelpurnar skemmtu sér konunglega. Þetta er góð aðferð til að leggja góðu málefni lið
Hlúum vel að þeim sem okkur þykir vænt um og þá sem minna mega sín. Megi nýtt ár færa okkur öllum gleði, hamingju og góða heilsu
Um bloggið
Sigrún Þorbjörnsdóttir
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frábært og yndislegt hjá ykkur :-)
Jónína Dúadóttir, 30.12.2008 kl. 14:27
Takk fyrir Jónína mín yndislegust
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 30.12.2008 kl. 22:26
Sæl Sigrún og gleðilegt ár Þau voru að fara frá mér Guðni og mamma þín. Voru að heimsækja Bangsa litla krútt. Það er dásamlegt að sjá þá saman "feðgana"
Flott peysan! Það er svo skemmtilegt þetta jólapukur
Hafið það gott öll sömul og megi nýja árið færa ykkur gleði og gæfu. Sjáumst!
Ragnhildur Jónsdóttir, 3.1.2009 kl. 22:19
Takk Sigrún mín fyrir þessa yndislegu færslu. Flott hjá þér heheheh peysa fyrir Guðna bróður ég var einmitt að segja við Báru mína í gær, þegar mínar voru að prinsessast, að mér dytti svo oft í hug þínar stelpur og svo Jenný Una. Allar prinsessurnar okkar Það hefur verið notalegt hjá ykkur yfir jólin það er gott. Kærleikskveðja til ykkar
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.1.2009 kl. 13:43
Vá, æðislegar stelpurnar þínar.
Helga Magnúsdóttir, 5.1.2009 kl. 20:56
Ragnhildur mín; þeir eiga eftir að verða góðir saman þessir tveir Hí hí, ég elska svona pukur fyrir jólin.
Ásthildur mín; þær eru allar svo líkar þessar yndislegu prinsessur okkar. Verst að ég missti af Báru núna, tíminn líður svo hratt að hún var farin áður en maður snýr sér við... En við eigum vonandi eftir að hittast í vor eða sumar þegar hún verður á ferðinni. Knús á þig
Helga mín; Takk
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 6.1.2009 kl. 01:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.