Hann á afmæli í dag!

Það var á þessum degi fyrir 31 ári síðan að ég loksins fékk bróður. Ég var búin að bíða í 9 löng ár þegar hann fæddist. Og þegar ég eignaðist bróður, þá EIGNAÐIST ég hann sko, og á hann enn Grin Það fékk sko enginn að koma nálægt honum fyrir mér, hehe.

IMG 9376

Held samt að dætur mínar eigi smá í honum líka Wink Hér eru þær á laugardaginn að hjálpa honum við að koma steikinni betur fyrir W00t

IMG 9383

Hér er hann svo að fara yfir tölvuna fyrir mig...ég telst vera frekar tölvufötluð þegar kemur að tæknimálunum...Whistling

IMG 5641

En sjálft tæknitröllið átti samt í erfiðleikum með nýja geim-dósaopnarann minn LoL

IMG 3674

En ég geri nú stundum eitthvað fyrir hann. Eins og til dæmis að fórna brjóstahaldaranum mínum til að gera við mótorhjólabuxurnar hans W00t ...eða þannig sko. Reyndar er þetta ekki brjóstahaldari, heldur gamall kjóll sem nýttist vel í þessu tilfelli...

IMG 3682

Og hér er hann mættur á hjólið. Takið eftir fína Ferrari bakpokanum sem hann er með...hahahaha... ég sendi hann í búð fyrir mig og að sjálfsögðu átti ég engan annan bakpoka Whistling

104 0456 img 563038

Hér er hann í algengri stellingu, enda mikill áhugamaður um allt sem fer hratt

scan0002

Og sá áhugi byrjaði snemma. Hér er hann byrjaður að máta flugvélar Smile

dsc 5452 02

Og hér flýgur hann litla Úlvinum sínum. Þeir sem vit hafa á, hafa sagt mér að hann sé mjög fær flugmaður (mynd fengin af blogsíðu Guðna)

Jamm, og í tilefni dagsins, þá fékk ég mér eins klippingu og Guðni...

IMG 4773 02

...eða þannig sko. Þessi mynd af okkur er síðan í fyrra, á meðan ég var í lyfjameðferð. Guðni átti þá, eins og alltaf, stóran þátt í lífi mínu. Hann sat yfir mér dögum og vikum saman, og með hans einstaka skemmtilega svarta húmor tókst honum alltaf að breyta "æluviku" hjá mér yfir í "sæluviku" Þúsund þakkir fyrir það allt saman elsku besti brói InLove

Til hamingju með afmælið þitt elsku Guðni

Ég er á leiðinni til þín og ætla að knúsa þig í klessu Kissing

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Til hamingju með litla bró

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 18.8.2008 kl. 20:50

2 Smámynd: gudni.is

Bestu þakkir fyrir þetta allt elsku besta systir!! Takk fyrir samveruna í kvöld á afmælisdaginn minn og takk innilega fyrir þessa frábæru broslegu samantekt um besta bróður þinn!!  Ég hlæ mig máttlausann aftur og aftur þegar ég les aftur yfir öll skemmtilegu kommentin um mig í þessari færslu þinni. Er m.a. sérstaklega hrifinn af vandræðum mínum með geim-dósaopnarann þinn og setningunni þar sem þú segir mig hafa haft gott lag á að breyta æluviku í sæluviku.... Frábært. Þú ert besta stóra systir í heimi !!

gudni.is, 19.8.2008 kl. 01:11

3 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 19.8.2008 kl. 18:14

4 identicon

SIGRÚN ER BLEIK GLIMMERNAGLASÚPA MEÐ SJÖÖÖÖÖÖÖÖÖRI

aurora (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 15:46

5 identicon

MEÐ EMMMI LÍKA    HAHAHAHA

aurora (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigrún Þorbjörnsdóttir

Höfundur

Sigrún Þorbjörnsdóttir
Sigrún Þorbjörnsdóttir

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • IMG 7150
  • IMG 7145
  • IMG 8394
  • IMG 7856
  • IMG 7847

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 1189

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband