13.4.2008 | 09:52
Mömmusyndrom
Við hjónin ætlum að skreppa á mánudaginn í nokkurra daga frí og ætlum við að skoða borgina Kraká og njóta þess að vera bara tvö saman. Ég er bara strax farin að fá fráhvarfseinkenni frá litlu snúllunum mínum Þetta er alveg ótrúlegt. Mann langar svo að fá smá púst frá barnastússi en er svo strax farin að sakna þeirra Þau geta verið voða skrýtin þessi mömmugen... En þær verða í góðum höndum á meðan. Mamma og pabbi ætla að flytja hingað á meðan og þær eiga eftir að snúa gamla settinu í marga hringi Og Simbi verður örugglega ánægður að hafa extra klappara á staðnum.
En nú þegar vorið er að koma er voða ljúft að fara í pottinn á kvöldin
Svo er voða gaman að maka sig með raksápunni hans pabba og gerast pottaskrímsli!
Svo er ærslast smá fyrir háttinn
Og í morgun var að sjálfsögðu farið í pottinn
Simbi þrífætti fylgist með út um gluggann
Og svo smá geiiiiisp
Þórdís að hjóla í góða veðrinu
Og dúkkan fékk að vera með
Eydís er örugglega með rallýblóðið í æðunum. Ekki langt að sækja það...
Með hljóðum og öllu
Simbi fylgist með úr fjarlægð. Öruggara...
Ég varð að gera smá hlé á færslunni í gærkvöldi. Steini var búinn að elda svaka flotta miðnætursteik handa okkur, humar, namminamm. Svo þegar ég vaknaði í morgun var allt orðið svona:
Talandi um vorið... það er eitthvað lengi að ákveða sig hvort það ætlar að koma
Um bloggið
Sigrún Þorbjörnsdóttir
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.