28.3.2008 | 23:48
Vandræði
Ég vaknaði við það í morgun þegar lítil hönd strauk mér mjúklega á kinnina. Þegar mér tókst að setja rifu á annað augað sá ég lítið og fallegt brosandi andlit. "Það er kominn nýr dagur, mamma" sagði dóttir mín brosandi, en eitthvað hlýt ég að hafa dottað aftur því það næsta sem ég finn er lyktin af Fréttablaðinu. "Það er kominn póstur, mamma" segir dóttir mín og heldur blaðinu þétt upp að andlitinu á mér. Það er ekki annað hægt en að drífa sig á lappir þegar maður fær svona góða byrjun á deginum
Eftir að skvísurnar voru komnar á leikskólann lá leiðin í höfuðborgina þar sem ég átti tíma hjá tannsa í áframhald af Hollywood-meðferðinni minni. Ég fer nú bráðum að smæla framan í heiminn
Og fyrst ég var mætt í höfuðborgina gat ég ekki sleppt því að fara í vinnuna til pabba í hádeginu og heyra hvað kaffistofugengið væri að skrafa núna. En nota bene, allir hlógu þegar ég mætti og var ástæðan sú að ég hafði verið umræðuefnið. Þeir voru búnir að þefa það uppi að ég hafði stofnað aðgang í bloggheimum. Og eitthvað eru þeir vantrúaðir blessaðir karlarnir, að tæknitröllið ég, með mína þolinmæði gagnvart tölvuapparatinu, eigi eftir að fara að blogga Ég ætlaði mér nú reyndar ekkert að blogga, heldur eiga aðgang til að geta kommenterað á aðra undir nafni. Sá gamli heldur því nefnilega fram að ég sé tæknifatlaðri heldur en hann og að ef ég skildi blogga, þá mundi hann nú aldeilis gera það líka, hehehe. Svo nú er boltinn hjá þér pabbi. Ég bíð spennt. Ekki veit ég hvaða vandræði ég er að kalla yfir mig núna...en gamli er víst þekktur fyrir hrekkjabrögð, svo ég má búast við öllu núna
Ég notaði líka ferðina í dag og fór í Bónus. Síðasti séns að versla inn mjólk áður en hún hækkar. Mér reiknast til að á mínu heimili muni mjólkurskammturinn hækka um tæpar 21 þúsund krónur á ári miðað við okkar mjólkurvenjur. Ætli maður noti svo ekki bara gömu hjólbörurnar til að flytja mjólkina heim, því varla á maður fyrir bensíninu mikið lengur
Eftir leikskólann nutum við dagsins úti í garði í góða veðrinu. Bara komin vorlykt í loftið og túlipanarnir farnir að gægjast upp. Var búin að baða og hátta snúllurnar klukkan sex. Ætlaði að láta þær fara að sofa á réttum tíma en það er eitthvað erfitt að vinda ofan af páskafríinu. Foreldrarnir voru orðnir pínu pirraðir, híhí, en það verður löngu gleymt í fyrramálið þegar brosandi andlit vekja okkur
Sá þrífætti búinn í kvöldsnyrtingu hjá Eydísi
Þórdís komin með svefngalsa
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sigrún Þorbjörnsdóttir
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til lukku með fyrstu færsluna hérna systir kær..!!
Og hjartanlega velkomin í bloggheiminn ógurlega... Kannski áttu eftir að verða "svakalegaheimsfrægurogmoldríkurbloggariáÍslandi" (nýyrði) alveg eins og bróðir þinn...?? Hehehehe...
Kveðja frá LITLA bróður..
gudni.is, 29.3.2008 kl. 02:24
hollywood meðferð á tönnum? verða þær þá gylltar með glimmeri?
aurora (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 00:13
Ég vissi ekki að maður gæti orðið ríkur af bloggi, hahaha, en það skiptir svo sem ekki máli, enda er ég nógu rík
Já, heldurðu að ég verði ekki flott með glimmer tennur... Nei góða mín, nú er sko allt að verða hvítt. Og ef ég verð "svakalegaheimsfrægurogmoldríkurbloggariáÍslandi" þá fæ ég mér kannski líka demant í tönn
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 1.4.2008 kl. 13:23
hva!? á ekkert að halda áfram? þarf maður núna að setja upp sólgleraugu þegar þú brosir? ...eins gott að vera ekki mjög fyndinn þegar maður er þunnur... ...og svo sigrún að hlæja ...og allir viðstaddir
aurora (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 13:18
jæja... bara slappari bloggari en ég! og þakka þér fyrir afmæliskveðjuna unglambið mitt, bara að muna að sýna viðeigandi virðingu fyrir fólki á fimmtugsaldri... allavega fram í oktober
aurora (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 18:05
Hmmm... á ekkert að fara að blogga meira systir góð..?? Er kannski bloggstífla í Grindjánavík?
Gaman að Aurora skuli minna mig á hvað þið eruð að verða gamlar....Hahaha þið gömlu konur....!!
gudni.is, 10.4.2008 kl. 14:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.