Litli siðapostulinn

Ég tel mig aldrei hafa verið neitt sérlega orðljóta manneskju. Finnst ekkert sérlega fallegt að blóta til dæmis. Og eftir að stelpurnar fæddust hef ég passað mig sérlega vel að vera ekkert að því. Svo er náttla stóra stelpan mín orðin 5 ára og það jafnast alveg á við daglega kennslustund í mannasiðum að umgangast hana W00t Mér verður stundum á að segja "shit" og er samstundis tekin í bakaríið af Þórdísi. "Mamma, það er ekki fallegt að segja shit, það er skítur" svo það er eins gott að vanda orðavalið Blush

Um daginn fórum við með stelpurnar í leikhús að sjá Kardemommubæinn. Eydís var ekkert á því að borða matinn sinn áður en við fórum og Steini lét það út úr sér að hún gæti þá bara verið heima með kisunum meðan við færum í leikhús. "Pabbi, það er bannað að skilja börn eftir ein heima" sagði þá Þórdís. Steini ætlaði að klóra sig út úr þessum vandræðum og sagðist bara hafa verið að plata. "Pabbi, þú varst að drepa engil. Það er bannað að plata" sagði mín þá um hæl LoL Það borgar sig ekki að, hvorki lofa né hóta, einhverju sem maður getur ekki staðið við. Litlir rökfræðingar eru fljótir að átta sig á því.

IMG 3514

Það er ekki hægt að banna neinum að gefa kisu ost því "maður verður sterkur af osti" LoL Dorrit er reyndar algjört átvagl og verður að fá að smakka allt. Hún er sérlega sólgin í hafragraut!

IMG 3499

Dorrit Engill hefur alveg slegið í gegn hér á heimilinu. Þessar tvær eru góðar vinkonur.

IMG 3566

Um leið og stelpurnar vakna um helgar, sækja þær Englakisu til að kúra með yfir barnatímanum.

IMG 3589

Ekki slæmt fyrir kisu að hafa marga "klappara"

IMG 3583

Og kisu leiðist það ekki. Hún er voða hænd að stelpunum og þeim leyfist alveg að hnoðast með hana.

IMG 3367

Það er aftur á móti erfiðara að hnoðast með Simba en ekkert ómögulegt samt LoL 

IMG 3542

Þegar við förum út, fer Þórdís með Dorrit inn í herbergi og setur hana í rúmið sitt. Hún gætir þess vel að það fari nógu vel um kisurnar Smile 

IMG 3552

Eydís er búin að vera lasin en er öll að koma til Smile 

IMG 3614

Og nú er Þórdís orðin lasin. Svo það eru bara stelpudagar hjá okkur þessa dagana. Ég hélt í gærkvöldi að ég væri að verða lasin líka en held ég sé að sleppa við það. Enda alveg í lagi að ég sleppi kannski eins og einni pest W00t og sleppi svo vonandi öllum hinum líka. Er alveg í fullu starfi þessa dagana við að ná bættri heilsu og það gengur vel WinkSmile 

Fullt af knúsum yfir á ykkur og megi vikan verða ykkur góð KissingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jónína Dúadóttir, 17.3.2009 kl. 06:09

2 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Þið eruð nú BARA yndisleg Ég vona að þið farið að losna við þessar pestir í eitt skipti fyrir öll. Það er með ólíkindum hvað pestir eru þaulsetnar þennan veturinn.

Það er nú ekki amalegt hvorki fyrir prinsessur né kisur að fá svona knúsuknús yfir sjónvarpinu Alveg dásamlegt að sjá þær saman allar þrjár. Og Simbi, hann er aaaaaaaðeins þyngri en litla Englakisan Dorrit hahaha

Knús á ykkur öll

Ragnhildur Jónsdóttir, 17.3.2009 kl. 14:53

3 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Jónína mín;  

Ragnhildur mín; takk mín kæra. Úff já, þessi vetur hefur aldeilis verið erfiður hvað pestir varðar. Ég vona bara að þetta fari að minnka með hækkandi sól.

Hér er sko alltaf knúsfullt hús og engum leiðist það  Ég vigtaði hlunkinn að gamni, hann er samt ekki nema 5,6 kg. Ég átti alveg von á því að hann væri þyngri því mér finnst hann eitthvað svo mikill um sig. Kannski virkar hann bara meiri hlunkur með bara þrjá fætur... Þórdís vildi endilega vigta Dorrit líka og hún er 1,9 kg  

Knús frá okkur öllum stelpunum

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 17.3.2009 kl. 16:37

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég segi það alltaf það á að hlusta á börnin, þau vita sínu viti þessar elskur   Skemmtilegar myndir af kisum og stelpum og stórum strákum líka

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2009 kl. 22:22

5 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ásthildur mín; þau vita svo sannarlega sínu viti! Og getur verið fyndið þegar þau eru að siða okkur foreldrana til  Ég vildi óska þess að allir væru jafn einlægir og réttsýnir og börn, þá væri lífið einfaldara og betra

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 19.3.2009 kl. 00:04

6 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Já börnin eru svo dásamlega einlæg með sínar skoðanir. Ég er alveg sammála, lífið væri sko einfaldara og betra ef það væri meira hlustað á þau. Svo mætti fullorðið fólk líka oft hlusta betur á sitt innra barn, þá værum við örugglega nær einlægninni og fallegra og réttsýnna samfélagi.

Ragnhildur Jónsdóttir, 19.3.2009 kl. 11:22

7 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ragga mín; við bara gerum okkar besta, og reynum svo að smita og dreifa því yfir á alla aðra

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 20.3.2009 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigrún Þorbjörnsdóttir

Höfundur

Sigrún Þorbjörnsdóttir
Sigrún Þorbjörnsdóttir

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG 7150
  • IMG 7145
  • IMG 8394
  • IMG 7856
  • IMG 7847

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband